Nú þegar ég er loksins farinn að nota fínu espresso vélina mína get ég stjórnað hressleikastigi mínu mun betur en áður. Maður vaknar frekar aumur, segjum hressleikastig 3 þá skellir maður í sig einum espresso bolla og BÚMM! Kallinn bara kominn í 6,5. Svo stuttu síðar fær maður sér einn til og er strax kominn í blússandi 9 hressleikastig! Ekki amaleg byrjun á degi.
Það sem ég kann líka vel við með vélina er að ég hef gríðarlega ánægju af því að hella varlega upp á hvern bolla og passa að ekki sé korgur undir síunni, að það sé rétt magn af kaffi og passa upp á að bollarnir séu heitir svo að kaffið kólni ekki um leið og það lendir í köldum bollanum.
Auk þess þá slær þetta á ofvirknina í mér sem getur verið óþolandi fyrir þá sem heimsækja okkur. Þannig að í staðunn fyrir að vera að tromma á stofuborðinu, naga penna, hlusta ekki og búa til skutlu þá spjalla ég og nostra við að hella upp á kaffi á meðan, fullkomið!
Ég hef reyndar smá áhyggjur af því hvað ég er farinn að drekka mikið af kaffi en ég hætti ekki fyrr en þvag mitt verður dökkbrúnt.
Thög fyrir!
Recent Comments